Færslur: 2009 September
28.09.2009 08:08
Folöld 2009
Við fengum þrjú folöld þetta sumarið undan þremur mismunandi hestum og er fyrir löngu kominn tími til að greina frá þeim.
Undan Dagnýju og Blæ frá Hesti fengum við brúna hryssu sem hefur verið nefnd Bylgja. Dagný er undan Feyki frá Hafsteinsstöðum og Þrístjörnu og er því systir Dags. Blær er með 8,50 í aðaleinkunn í kynbótadómi og náði m.a. góðum árangri í sumar á Fjórðungsmóti Norð-Vestlendinga og var í úrslitum í A-flokki gæðinga.

Bylgja frá Hjaltastaðahvammi Blær frá Hesti
Undan Stjörnu og Seiði frá Flugumýri II fengum við brúnan hest. Stjarna er m.a. móðir Veru Hróðursdóttur sem var að koma ný inn í ræktuna hjá okkur í sumar. Seiður stóð m.a. efstur á síðasta Landsmóti í flokki 4. vetra hesta og var sýndur aftur í vor og hlaut 8,52 í aðaleinkunn. Hesturinn er ónefndur sem stendur.

Seiðsson frá Hjaltastaðahvammi Seiður frá Flugumýri II
Undan Kosingu fengum við rauðstjörnóttan hest undan Tinna frá Kjarri. Tinni er með 8,38 í aðaleinkunn úr kynbótadómi 5 vetra gamall og á eflaust eftir að bæta það næsta vor. Hesturinn hefur verið nefndur Kjarval.

Kjarval frá Hjaltastaðahvammi Tinni frá Kjarri

Skrifað af Friðrik
03.09.2009 22:51
Hryssur og stóðhestar sumarið 2009
Þá er kominn tími til að greina frá því hvaða stóðhestum við fáum folöld undan næsta vor. Vera frá Hjaltastaðahvammi er fylfull við Ómi frá Kvistum. Ómur stóð efstur í flokki 5. vetra stóðhesta á síðasta Landsmóti. Ómur er afar athylisverður hestur sem býr yfir frábæru skeiði með einkar góðu afturfótaskrefi. Hann er fríður hestur á velli og ekki spillir fyrir það að að honum standa heiðursverðlaunahross. Við erum því mjög spennt yfir því að fá afkvæmi undan Veru og Ómi næsta vor.

Ómur frá Kvistum

Vera frá Hjaltastaðahvammi
Þá fórum við með tvær hryssur undir Blysfara frá Fremra-Hálsi en hann er 4.vetra og undan Arði frá Brautarholti. Blysfari fór í kynbótadóm í vor og hlaut 7,95 í aðaleinkunn. Hann er einkar framgripsmikill og skrefmikill hestur með frábært geðslag, ásækinn og leggur sig fram við að gera knapanum til geðs. Blysfari er í eigu Jóns Benjamínssonar en Friðrik hefur séð um tamningu og þjálfun á hestinum fyrir hann.

Blysfari og Ísólfur Þ. Líndal

Flettingar í dag: 107
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 76
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 73344
Samtals gestir: 25279
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 15:42:48
HJALTASTAÐAHVAMMUR | 560 VARMAHLÍÐ - ÍSLAND | +354 899 7222 | INFO@HJALTASTADAHVAMMUR.IS