28.09.2009 08:08

Folöld 2009

Við fengum þrjú folöld þetta sumarið undan þremur mismunandi hestum og er fyrir löngu kominn tími til að greina frá þeim.

Undan Dagnýju og Blæ frá Hesti fengum við brúna hryssu sem hefur verið nefnd Bylgja. Dagný er undan Feyki frá Hafsteinsstöðum og Þrístjörnu og er því systir Dags. Blær er með 8,50 í aðaleinkunn í kynbótadómi og náði m.a. góðum árangri í sumar á Fjórðungsmóti Norð-Vestlendinga og var í úrslitum í A-flokki gæðinga.



Bylgja frá Hjaltastaðahvammi                               Blær frá Hesti

Undan Stjörnu og Seiði frá Flugumýri II fengum við brúnan hest. Stjarna er m.a. móðir Veru Hróðursdóttur sem var að koma ný inn í ræktuna hjá okkur í sumar. Seiður stóð m.a. efstur á síðasta Landsmóti í flokki 4. vetra hesta og var sýndur aftur í vor og hlaut 8,52 í aðaleinkunn. Hesturinn er ónefndur sem stendur.


Seiðsson frá Hjaltastaðahvammi                          Seiður frá Flugumýri II

Undan Kosingu fengum við rauðstjörnóttan hest undan Tinna frá Kjarri. Tinni er með 8,38 í aðaleinkunn úr kynbótadómi 5 vetra gamall og á eflaust eftir að bæta það næsta vor. Hesturinn hefur verið nefndur Kjarval.



Kjarval frá Hjaltastaðahvammi                         Tinni frá Kjarri
Flettingar í dag: 107
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 76
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 73344
Samtals gestir: 25279
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 15:42:48

HJALTASTAÐAHVAMMUR  |  560 VARMAHLÍÐ - ÍSLAND  |  +354 899 7222  |   INFO@HJALTASTADAHVAMMUR.IS