25.01.2010 16:57
Jaðar frá Litlu-Brekku í fínu formi
Þegar Friðrik hélt út til náms í Svíþjóðar í haust var Jaðar lánaður til Háskólans á Hólum þar sem hann hefur verið skólahestur fyrir nemendur á 1.ári í hestafræði. Jaðar veður áfram í þessu hlutverki sínu a.m.k. næstu vikur enda hefur hann reynst afar vel að sögn kennara. Friðrik leit í gær við í þjálfunarstund hjá Ísólfi Líndal og voru teknar nokkrar myndir í leiðinni. Ekki er annað hægt að segja en að hesturinn sé í mjög góðu formi og vel þjálfaður. Hér á eftir fylgja nokkrar myndir frá þessu tilefni. Rétt er að benda á að Jaðar er til sölu og hægt er að fá frekari upplýsingar um hann hér á síðunni undir Til sölu.
Our horse, Jaðar from Litla-Brekka, was loaned to Hólar University this fall when Friðrik went to study in Sweden. During this period he has been a school horse for students studying equine science and horsemanship. Jaðar will continue with his duties at Hólar for the next couple of weeks. Yesterday Friðrik saw him in a training session with Ísólfur Líndal, a riding instructor at Hólar. Jaðar was well trained and in excellent form. The following pictures cover this session. Jaðar is for sale and you can find further information about him by viewing the For sale page.
Jaðar á tölti í upphitun. Jaðar á brokki í upphitun.
Krossgangur á tölti. Meira brokk.
Tölt úti. Svo var fimmti gírinn auðvitað til staðar...
HJALTASTAÐAHVAMMUR | 560 VARMAHLÍÐ - ÍSLAND | +354 899 7222 | INFO@HJALTASTADAHVAMMUR.IS
