09.04.2010 21:23

Birkir og Darri

Þeir Birkir og Darri frá Hjaltastaðahvammi eru folar á sjötta vetur sem voru í þjálfun hjá Friðriki frá áramótum og fram að páskum. Sonja var búin að frumtemja þá en núna eru þeir báðir orðnir nokkuð reiðfærir. Birkir er undan Þorra frá Þúfu og Sunnu frá Sunnuhvoli en Darri er undan Stíganda frá Leysingjastöðum og Stjörnu frá Hjaltastaðahvammi. Báðir hestarnir eru efnilegir og var síðasti reiðtúrinn fyrir fríið nýttur í að ná nokkrum myndum af þeim. Friðrik er kominn með tvo nýja fola á hús, þá Kolfinn sem er undan Gígjari frá Auðsholtshjáleigu og Kosningu frá Ytri-Reykjum og Daða sem er undan Gelli frá Árbakka og Dagnýju frá Hjaltastaðahvammi. Þá fór annar foli, Gýmir frá Hjaltastaðahvammi, í tamningu í Lækjamót en hann er undan Gaumi frá Auðsholtshjáleigu og Glennu frá Syðra-Skörðugili. Þessir þrír folar eru allir á fjórða vetur en Kolfinnur og Gýmir voru frumtamdir í haust á Hólum af nemendum í tamningum.


Darri undan Stíganda frá Leysingjastöðum á stökki og brokki.



Birkir undan Þorra frá Þúfu á tölti og brokki.



... og Birkir á stökki.

Flettingar í dag: 107
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 76
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 73344
Samtals gestir: 25279
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 15:42:48

HJALTASTAÐAHVAMMUR  |  560 VARMAHLÍÐ - ÍSLAND  |  +354 899 7222  |   INFO@HJALTASTADAHVAMMUR.IS