13.06.2010 12:03

Fölöld ársins

Á undanförnum dögum hafa þau þrjú folöld sem við áttum von á í ár fæðst, heilbrigð og spræk. Fyrst í heiminn þann 4. júní var rauð hryssa undan Ómi frá Kvistum Veru frá Hjaltastaðahvammi, (f. Hróður frá Refsstöðum). Hryssan er geng, spræk, ljúf og ansi álitleg.


Hryssa undan Ómi frá Kvistum og Veru frá Hjaltastaðahvammi.


Þann 8. júní fæddist rauðblesóttur hestur undan Blysfara frá Fremra-Hálsi og Stjörnu frá Hjaltastaðahvammi. Sá rauðblesótti er léttur í spori, skrefgóður og gengur. Blysfari fór í kynbótadóm síðasta vor og hlaut 7,95 í aðaleinkunn 4. vetra gamall. Hann er einkar  framgripsmikill og skrefmikill hestur með frábært geðslag, ásækinn og leggur sig fram við að gera knapanum til geðs. Blysfari er í eigu Jóns Benjamínssonar en Friðrik hefur séð um tamningu og þjálfun á hestinum fyrir hann. Stefnt er með Blysfara aftur í dóm nú í sumar.



Rauðblesóttur hestur undan Blysfara frá Fremra-Hálsi og Stjörnu frá Hjaltastaðahvammi.


Síðasta folaldið sem okkur fæddist þetta árið kom 12. júní en þá kastaði Dagný frá Hjaltastaðahvammi (f. Feykir frá Hafsteinsstöðum) rauðstjörnóttri hryssu undan Blysfara frá Fremra-Hálsi. Friðrik fylgdist með fyrstu skrefum hennar í lífinu og myndaði.


Nýköstuð og að standa upp í fyrsta skipti.                              Leitað að sopa.


Að lokum set ég inn myndir af Blysfara frá kynbótasýningunni í fyrra af honum frá því hann var í hryssum í fyrra.



Flettingar í dag: 107
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 76
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 73344
Samtals gestir: 25279
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 15:42:48

HJALTASTAÐAHVAMMUR  |  560 VARMAHLÍÐ - ÍSLAND  |  +354 899 7222  |   INFO@HJALTASTADAHVAMMUR.IS