04.07.2010 19:13

Blysfari stóð sig vel á Vindheimamelum

Blysfari frá Fremra-Hálsi gerði það gott og vakti mikla athygli á kynbótasýningunni á Vindheimamelum sem lauk á laugardaginn. Blysfari, sem er einkar skrefmikill, ganggóður og hágengur 5 vetra alhliðahestur, hlaut 8.31 í aðaleinkunn en dóminn í heild sinni má sjá hér að neðan. Blysfari er undan Arði frá Brautarholti og 1.verðlauna hryssunni Frigg frá Fremra-Hálsi. Arður er eins og margir eflaust vita undan gæðingamóðurinni Öskju frá Miðsitju og Orra frá Þúfu. Blysfari er hæst dæmda afkvæmi Arðs enn sem komið er. Við höfum miklar mætur á Blysfara en Friðrik frumtamdi hann og hefur þjálfað frá upphafi en Ísólfur Líndal Þórisson sýndi hann. Ræktandi og eigandi Blysfara er Jón Benjamínsson og óskum við honum til hamingju með klárinn.






Blysfari verður í hólfi á Lækjamóti í Húnaþingi Vestra það sem eftir lifir sumars. ATH! FOLATOLLURINN ER FRÍR FYRIR 1.VERÐLAUNA HRYSSUR! - eins og pláss leyfir. Fyrir 1.verðlauna hryssur kostar 25 þúsund með vsk. Innifalið í því er hagagjald og ein sónarskoðun. Fyrir aðrar hryssur kostar folatollurinn 70 þúsund með hagagöngu og einni sónarskoðun án vsk. Athugið að 1.verðlauna hryssur ganga fyrir.

Tekið verður á móti hryssum þriðjudaginn 6. júlí, eða eftir samkomulagi. Hesturinn verður settur í miðvikudaginn 7. júlí. Hægt verður að bæta við hryssum hjá Blysfara í sumar, eftir samkomulagi.

Upplýsingar og pantanir eru hjá Friðriki í síma 899-7222 eða Sonju í síma 866-8786.



IS-2005.1.25-038 Blysfari frá Fremra-Hálsi

Sýnandi: Ísólfur Líndal Þórisson

Mál (cm):

140   129   137   64   142   36   45   43  
6,3   30,0   18,5  

Hófa mál:

V.fr. 9,2   V.a. 9,2  

Aðaleinkunn: 8,31



Sköpulag: 8,11

Kostir: 8,45


Höfuð: 7,5
   2) Skarpt/þurrt   H) Smá augu   K) Slök eyrnastaða  

Háls/herðar/bógar: 8,0
   5) Mjúkur   7) Háar herðar   D) Djúpur  

Bak og lend: 8,0
   8) Góð baklína  

Samræmi: 8,5
   4) Fótahátt   5) Sívalvaxið  

Fótagerð: 7,5
   6) Þurrir fætur   J) Snoðnir fætur  

Réttleiki: 7,5
   Afturfætur: 1) Réttir  
   Framfætur: D) Fléttar  

Hófar: 9,0
   1) Djúpir   4) Þykkir hælar   7) Hvelfdur botn  

Prúðleiki: 8,5

Tölt: 8,5
   2) Taktgott   3) Há fótlyfta   4) Mikið framgrip  

Brokk: 9,0
   4) Skrefmikið   5) Há fótlyfta  

Skeið: 8,0
   4) Mikil fótahreyfing  

Stökk: 8,5
   2) Teygjugott   4) Hátt  

Vilji og geðslag: 8,5
   2) Ásækni   5) Vakandi  

Fegurð í reið: 8,5
   3) Góður höfuðb.   4) Mikill fótaburður  

Fet: 8,0
   1) Taktgott  

Hægt tölt: 8,5

Hægt stökk: 8,0

Flettingar í dag: 107
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 76
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 73344
Samtals gestir: 25279
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 15:42:48

HJALTASTAÐAHVAMMUR  |  560 VARMAHLÍÐ - ÍSLAND  |  +354 899 7222  |   INFO@HJALTASTADAHVAMMUR.IS