Til sölu / For sale

Hægt er að fá frekari upplýsingar um hesta til sölu með því að senda tölvupóst á netfangið fridrik@hjaltastadahvammur.is. Hafið samband ef þið vijið spyrjast fyrir um hross í okkar eigu. Athugið að verð eru án virðisaukaskatts.


At Hjaltastaðahvammur we have a number of interesting horses for sale. If you are interested in the horses we offer or if you need assistance regarding finding the horse of your dreams don't hesitate to contact us by sending email to fridrik@hjaltastadahvammur.is.

You can use currency converter for the exchange rates from ISK to your currency.








Ormur frá Syðra-Kolugili
IS2009155178
Grár, fæddur móálóttur / Grey, born blue dun

F: Óskar frá Blesastöðum
M: Sína frá Snjallsteinshöfða

Ormur er tveggja vetra geldingur. Hann er geðgóður, hágengur og skrefgóður foli og sýnir m.a. mjög gott brokk og stökk undir sjálfum sér. Hann er undan Óskari frá Blesastöðum og Sínu frá Snjallsteinshöfða, en Sína er undan Adami frá Meðalfelli. Óskar vakti fyrst athygli í ræktunarbússýningu frá Blesastöðum á Landsmóti árið 2008 þá 4. vetra gamall. Hann hlaut 8,35 fyrir kosti og 8,22 í aðaleinkunn í kynbótadómi 5. vetra gamall. Hann hlaut þá m.a. einkunnina 9,5 fyrir hægt tölt og stökk og einkunnina 9 fyrir tölt, vilja og geðslag, fegurð í reið, hægt stökk og samræmi. Sína hefur í kynbótadómi hlotið einkunnina 8,5 fyrir fegurð í reið og samræmi, einkunnina 8,3 fyrir háls, herðar og bóga og hófa og 8 fyrir tölt, brokk, stökk og vilja og geðslag.


Ormur is two year old gelding with nice temperament, high movements, long strides and impressive trot and canter. Ormur is sired by Óskar from Blesastaðir, which is sired by the famous Töfri from Kjartanstaðir. Óskar has the total score of 8,35 and has the score of 8,22 for riding abilities in breeding assessment. He has the score of 9,5 for slow tölt and gallop, and the score of 9 for tölt, trot, canter, spirit, form under rider and proportions. Ormur's dam Sína has the score of 8,5 for form under rider and proportions, the score of 8,3 for neck, withers and shoulders and hooves and 8 for tölt, trot, gallop and spirit.

Verð/Price: 300.000.- ISK



Ormur sumar 2011                                                                                        Ormur sumar 2010 


Óskar frá Blesastöðum


Horfa á myndband / Watch video









Náttfari frá Hjaltastaðahvammi
IS2011158739
Brúnnösóttur leistóttur / Black with snip and socks on hindlegs

F: Vilmundur frá Feti
M: Vera frá Hjaltastaðahvammi

Náttfari er undan Landsmótssigurvegaranum Vilmundi frá Feti sem hlaut 8,56 í aðaleinkunn í kynbótadómi árið 2006. Vilmundur hlaut 1. verðlaun fyrir afkvæmi á landsmóti 2011, en hann er undan heiðursverðlaunahrossunum Orra frá Þúfu og Vigdísi frá Feti. Náttfari er undan Veru frá Hjalstastaðahvammi sem hefur hlotið 7,90 í kynbótadómi, þar af 8,5 fyrir háls, herðar og bóga, bak og lend, samræmi, brokk og fet. Vera er undan Hróðri frá Refsstöðum sem hefur hlotið heiðursverðlaun fyrir afkvæmi. Náttfari er efnilegt stóðhestsefni með heiðursverðlaun í báðar ættir og með 115 Í BLUP.


Náttfari is sired by Vilmundur from Fet, a Landsmót winner from 2006. Vilmundur has got 8,56 in total score in breeding assessment in 2006 and first price for offspring in 2011.  Vilmundur's sire is the famous honorary price stallion Orri from Þúfa and his dam is the honorary price mare Vigdís from Fet. Náttfari's dam, Vera, has got the total score of 7,90 in breeding assessment and the score of 8,5 for neck, withers and shoulders, back and croup, proportions, trot, and walk. Vera is sired by the honorary price stallion Hróður from Refsstaðir. Náttfari is a promising stallion prospect with an excellent pedigree, an exciting youngster with talent and great potential. Náttfari has a BLUP of 115.

Verð/price: 850.000.- ISK


Náttfari frá Hjaltastaðahvammi.

 



Laxness frá Lækjamóti

IS2011155101
Rauðtvístjörnóttur / Chestnut with star and snip

F: Blysfari frá Fremra-Hálsi
M: Rauðhetta frá Lækjamóti


Laxness er undan Blysfara frá Fremra-Hálsi og fyrstu verðlauna Kolfinnsdótturinni Rauðhettu frá Lækjamóti, en hún hefur gefið mörg góð afkvæmi. Blysfari er hæst dæmda afkvæmi Arðs frá Brautarholti, sem stóð efstu hesta með 1 verðlaun fyrir afkvæmi á landsmóti 2011. Blysfari hefur hlotið 8,49 í aðaleinkunn í kynbótadómi og 8,77 fyrir hæfileika. Hann hefur hlotið einkunnina 9 fyrir tölt og fegurð í reið og hefur hlotið einkunnina 9,5 fyrir brokk og vilja og geðslag, þó ekki í sama skiptið. Laxness er með 117 í BLUP.