Um okkur
Friðrik Már Sigurðsson
Friðrik er fæddur í Kaupmannahöfn árið 1980 og ólst upp í Reykjavík og bjó þar þangað til hann lauk námi við framhaldsskóla. Eftir það hefur hann unnið í tengslum við hesta bæði hér á landi og erlendis. Friðrik hefur stundað nám við Háskólann á Hólum og Landbúnaðarháskóla Íslands og starfaði um tíma hjá hestatímaritinu Eiðfaxa og frá árinu 2008 til 2011 við Háskólann á Hólum.
Friðrik útskrifaðist með diplóma í tamningum og hlaut hæstu einkunn á tamningaprófi við Háskólann á Hólum árið 2003 og er því fyrsti handhafi tamningabikars Félags Tamningamanna. Hann var í verknámi í tamningum og þjálfun hjá Gunnari Arnarsyni og Kristbjörgu Eyvindsdóttur í Auðsholtshjáleigu. Hann lauk B.S. prófi í búvísindum frá Landbúnaðarháskóla Íslands árið 2006, þar sem lokaritgerð hans fjallaði um ágrip hjá íslenskum kynbótahrossum. Hann lauk svo diplómanámi í þjálfun og reiðkennslu frá Háskólanum á Hólum árið 2008. Friðrik er alþjóðlegur kynbótadómari FEIF frá árinu 2009, en hefur dæmt kynbótahross á Íslandi frá árinu 2008. Friðrik og Sonja unnusta hans búa nú í Kaupmannahöfn þar sem Sonja stundar nám í dýralækningum.
Sími: 899 7222
Sími í Danmörku: +45 40231819
Netfang: fridrik@hjaltastadahvammur.is

Sonja Líndal Þórisdóttir
Sonja unnusta Friðriks hefur lokið tveimur árum frá Háskólanum á Hólum og hlaut Morgunblaðsskeifuna eftirsóttu fyrir hæstu meðaleinkunn í reiðmennsku við skólann árið 2007. Sonja náði góðum keppnisárangri í yngri flokkum og hlaut m.a ásetuverðlaun FT og knapaverðlaun LH á LM1998. Sonja stundar nú nám í dýralækningum við Kaupmannahafnarháskóla. Samhliða náminu er Sonja með reiðkennslu fyrir eigendur íslenskra hesta í nágrenni Kaupmannahafnar.
Sími: 866 8786
Sími í Danmörku: +45 21575095
Netfang: sonjalindal@gmail.com

Jakob Friðriksson Líndal
Jakob, sonur Friðriks og Sonju er fæddur 28. maí 2011. Hefð er fyrir því í fjölskyldu Sonju að börn fái sinn fyrsta hest, þá folald í tanngjöf frá foreldrum sínum. Jakob fékk sínar fyrstu tennur um jólin 2011 og fékk þá folaldið Sörla frá Hjaltastaðahvammi sem er undan Vilmundi frá Feti og Dagnýju frá Hjaltastaðahvammi.

Sörli hans Jakobs. Jakob og Sörli. Jakob með folöldum.
Sigurður Leifsson og Margrét Árný Sigursteinsdóttir

Á ferðalagi í Fögruhlíð í Austurdal
Sigurður Leifsson
Sími: 858 8014
Sími: 664 8331

Flettingar í dag: 107
Gestir í dag: 54
Flettingar í gær: 76
Gestir í gær: 38
Samtals flettingar: 73344
Samtals gestir: 25279
Tölur uppfærðar: 7.2.2012 15:42:48
HJALTASTAÐAHVAMMUR | 560 VARMAHLÍÐ - ÍSLAND | +354 899 7222 | INFO@HJALTASTADAHVAMMUR.IS